Fara beint í efnið

26. apríl 2022

Sýnatökur vegna COVID-19

Að gefnu tilefni vill sóttvarnalæknir ítreka að áfram verður boðið upp á sýnatökur vegna COVID-19.

Sóttvarnalæknir - logo

Sýnatökum hefur fækkað en um 50–100 manns greinast enn á dag. Þeir sem hafa einkenni COVID-19 eða hafa greinst með heimaprófi geta pantað PCR eða hraðpróf hjá heilsugæslu á Heilsuveru til að staðfesta greiningu. Staðfest greining er skráð í sjúkraskrá og er grundvöllur þess að fá útgefið opinbert vottorð um sýkingu og bata (samevrópskt rafrænt vottorð). Þá er mikilvægt að halda áfram PCR prófum til að hægt sé að raðgreina sýni og þannig fylgjast með þeim afbrigðum sem eru í gangi í samfélaginu. Úrtak sýna er raðgreint af Landspítala í hverri viku í þessum tilgangi.

Á höfuðborgarsvæðinu eru PCR sýnatökur á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Sýnataka mun flytjast frá Suðurlandsbraut 34 í húsnæði heilsugæslunnar Álfabakka 16 um næstu mánaðarmót (sjá nánar á vef heilsugæslunnar). Á landsbyggðinni sjá heilsugæslustöðvar um sýnatökur og bjóða eftir atvikum upp á PCR eða hraðpróf og er bent á vefi viðkomandi stofnana varðandi fyrirkomulag sýnatöku.

Einnig verður áfram boðið upp á sýnatökur fyrir ferðamenn á leið úr landi sem þurfa að framvísa vottorði um neikvætt próf á ferðalaginu. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og heilbrigðisstofnun Norðurlands bjóða upp á PCR próf en einkaaðilar bjóða upp á hraðpróf. Vísast á viðkomandi stofnanir og aðila varðandi fyrirspurnir og fyrirkomulag þeirrar sýnatöku.

Sóttvarnalæknir