27. mars 2026
27. mars 2026
„Svona samtöl snúast ekki um að skamma fólk fyrir fjarvistir, heldur eigi þau að styðja við og hlúa að starfsfólkinu.“
Frétt

„Nálgunin snýr að því að mæta starfsmanninum þar sem hann er staddur hverju sinni. Með því að spyrja: Hvernig líður þér? Hvað er að frétta?“ segir Ingibjörg Rafnsdóttir mannauðsstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) og bætir við:
Við hvetjum okkar stjórnendur til að nýta jafnvel tímann á göngunum eða gólfinu og mynda tengslin þar. Því auðvitað er starfsfólk einfaldlega önnum kafið og margir stjórnendur sem staarfa í klíníkinni. Tími til formlegra og bókaðra samtala getur því verið lítill. En við horfum á þetta sem langhlaup og aðalmálið fyrir okkur er að vera farin af stað, þótt innleiðingin taki nokkur ár á endanum. Umræðuefnið er viðverustjórnun, innlit og breytingar á vinnustaðamenningu sem ætluð er að draga úr fjarvistum á fjölmennum og flóknum vinnustað. Á HSU starfa nú 855 starfsfólk í 611 stöðugildum, frá um 25 þjóðernum, af öllum þeim fjórum kynslóðum sem nú starfa á vinnumarkaði en flestir á aldrinum 30-45 ára
.„Við erum tiltölulega nýbyrjuð á innleiðingunni en við erum þó farin að sjá sýnilegan árangur strax,“ segir Ingibjörg.