Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. september 2004

Þessi frétt er meira en árs gömul

Svíakonungur heimsækir fjarskiptamiðstöð lögreglunnar

Karl Gustav Svíakonungur og Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands heimsóttu Björgunarmiðstöðina Skógarhlíð í morgun og kynntu sér starfsemina sem þar fer fram. Skoðuðu þeir fjarskiptamiðstöð lögreglunnar og samhæfingarstöð almannavarna, starfstöð Neyðarlínunnar og aðra starfsemi sem þar er til húsa. Karl Gustav, sem er mikill áhugamaður um útivist og björgunarmál, lauk lofi á samstarfið í Björgunarmiðstöðinni og hversu vel væri búið að þeim sem þar starfa.

Á ljósmyndinni, sem Júlíus Sigurjónsson tók, sést þegar Jónína S. Sigurðardóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, kynnir starfsemi fjarskiptamiðstöðvarinnar fyrir Svíakonungi og forseta Íslands.