13. maí 2026
13. maí 2026
Sumarhátíð táknmálsbarna
Sumarhátíð táknmálsbarna var haldin laugardaginn 9. maí sl. og heppnaðist hún vonum framar! Stemningin var einstök og gleðin skein úr hverju andliti 💛

Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra bauð upp á pylsur og safa, á meðan Félag heyrnarlausra gladdi gesti með frostpinnum og heitu kakói – sannkölluð veisla fyrir alla!
Uldis og Eyrún á Samskiptamiðstöð stýrðu dagskránni af stakri snilld og Uldis og Arno á Sólborg stýrðu leikjum og héldu uppi fjöri og góðu flæði allan tímann.
Neyðarlínan 112 gladdi börnin einnig með því að gefa þeim buff og endurskinsmerki.
Hátíðin er samstarfsverkefni Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra, Foreldra- og styrktarfélags heyrnardaufra, Félags heyrnarlausra og leikskólans Sólborg.
Við þökkum öllum sem komu, tóku þátt og lögðu sitt af mörkum til að gera daginn svona eftirminnilegan. Svona stundir skipta máli!