13. maí 2024
13. maí 2024
Suðurland: atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á sjúkrastofnunum og í fangelsum
Tímasetningar vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar vegna forsetakosninga þann 1. júní 2024 á sjúkrastofnunum og í fangelsum á Suðurlandi
Selfoss og nágrenni:
Fangelsið Sogni, Ölfusi þriðjudaginn 21. maí kl. 10:00 – 11:00.
Sólheimar í Grímsnesi miðvikudaginn 22. maí kl. 13:00 – 14:00.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Selfossi, sjúkra- og hjúkrunardeildir, þ.m.t. Móberg föstudaginn 31. maí 10:00-12:00.
Eyrarbakki:
Dvalarheimilið Sólvellir, Eyrarbakka þriðjudaginn 21. maí kl. 14:00 – 15:00.
Fangelsið Litla Hrauni, Eyrarbakka föstudaginn 17. maí kl. 10:00 – 11:00.
Hveragerði:
Heilsustofnun NLFÍ fimmtudaginn 23. maí kl. 13:00-14:00.
Ás, dvalar- og hjúkrunarheimili, Hverahlíð 20 föstudaginn 24. maí kl. 09:30 – 11:30.
Hella:
Lundur, hjúkrunar- og dvalarheimili þriðjudaginn 21. maí kl. 10:00-11:00.
Hvolsvöllur:
Kirkjuhvoll, hjúkrunar- og dvalarheimili miðvikudaginn 22. maí kl. 13.00-14:00.
Vík:
Hjallatún, dvalarheimili miðvikudaginn 22. maí kl. 10.30-11:30.
Kirkjubæjarklaustur:
Klausturhólar, hjúkrunar- og dvalarheimili miðvikudaginn 22. maí kl. 14.00-15:00.
Höfn:
Skjólgarður, dvalarheimili þriðjudaginn 28. maí kl. 13:00-14:00.
Atkvæðagreiðslan er einungis ætluð þeim sem dvelja á viðkomandi stofnunum.
Á kjördag, 1. júní, verður atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna forsetakosninga sem hér segir:
Á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Selfossi kl. 10:30-11:00.
Á Litla-Hrauni kl. 11:30-12:00.
Á Sogni kl. 12:30-13:00.
Atkvæðagreiðslan er eingöngu fyrir þá sem dvelja á umræddum stofnunum og gátu ekki greitt atkvæði við fyrirfram auglýsta utankjörfundaratkvæðagreiðslu.
Heimilt er að fella niður atkvæðagreiðsluna ef fyrir liggur eftir samráð við fyrirsvarsmann stofnunar að ekki sé þörf á atkvæðagreiðslunni.