Fara beint í efnið

29. apríl 2024

Umsóknarfrestur um skógarplöntur frá Vorviði framlengdur til 5. maí

Land og skógur auglýsir eftir umsóknum frá félögum og samtökum um stuðning til skógræktar undir merkjum Vorviðar. Stuðningurinn er ætlaður til skógræktar á vegum almennra félaga og samtaka en ekki fyrirtækja eða stofnana. Einungis er veittur stuðningur í formi trjáplantna. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 5. maí.

Vorviður

Verkefnið Vorviður er hluti aðgerðaráætlunar stjórnvalda í loftslagsmálum og bættri landnýtingu í þágu loftslags. Með því gefst almannafélögum og samtökum kostur á að binda kolefni með eigin skógrækt.

Árið 2024 felst stuðn­ingurinn í úthlutun plantna af þremur tegundum trjáa:

  • ilmbjörk,

  • stafafuru,

  • sitkagreni.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur fyrir verkefni árið 2024 er til 5. maí 2024.

Umsóknarferli

Félög sækja um stuðning til Lands og skógar sem annast umsýslu verkefnisins. Sækja þarf um fyrir hvert ár.

Sækja um

Í umsókn þarf að koma fram:

  • Nafn og kennitala, heimilisfang, símanúmer og netfang félags og forsvarsmanns eða tengiliðar.

  • Ræktunarsvæði, staðsetning og landgerð (lýsing ásamt mynd eða korti).

  • Skipulagsleg staða landsins og verndarákvæði ef einhver eru.

  • Áætlað umfang, landstærð, fjöldi plantna og plöntutegundir sem óskað er eftir.

  • Upplýsingar um eignarhald á eða umráðarétt yfir landi.

Skilyrði

Umsækjendur

Eftirfarandi félög geta sótt um:

  • Formleg félög sem ekki hafa aðgang að annarri fjármögnun til skógræktar, til dæmis góðgerðarfélög og áhugamannasamtök.

  • Óformleg félög sem ekki hafa aðgang að annarri fjármögnun til skógræktar, til dæmis vinnustaða­félög.

  • Félög sem hafa aðgang að annarri fjármögnun til skógræktar, til dæmis skógræktar­félög.

Fyrirtæki og opinberar stofnanir eða félög (hf., ehf., sf., ohf.) koma ekki til greina.

Land

Hægt er að sækja um styrk fyrir eftirfarandi landsvæði:

  • Stærri lönd sem eru skipulögð til skógræktar og friðuð fyrir beit eða svæði inn­an slíkra heilda, til dæmis svæði innan skógræktarsvæða sveitarfélaga eða annarra aðila.

  • Stærri einkalönd sem eru friðuð fyrir beit.

  • Minni svæði (minnst 1 hektari) sem eru friðuð fyrir beit.

Frístundalóðir og svæði sem ekki eru friðuð fyrir beit koma ekki til greina.

Úthlutun

Niðurstöður verða kynntar í maí 2024.

Félög sem nota land sem þegar er á skipulögðu skógræktarlandi munu njóta forgangs. Forgangsröðun mótast einkum af ræktunaröryggi, aðallega hvað varðar beitarfriðun og örugga getu félaga til að koma hlutum í verk.

Félag sem hlýtur stuðning gerir samning við Land og skóg fyrir eitt ár í senn. Samningurinn er byggður á upplýsingum umsækjanda og einfaldri ræktunaráætlun.

Uppgjör

Fyrir 1. október skulu styrkþegar skila inn framkvæmdaskýrslu á þar til gerðu eyðu­blaði ásamt útlínum hins nýja skógar, hnituðu inn með sérstöku appi eða teiknað inn á loftmynd.

Bökkum undan skógarplöntum ber að skila inn á afhendingarstað sem fyrst eftir gróðursetningu.

Sækja um