22. júní 2026
22. júní 2026
Straumurinn fær evrópska viðurkenningu
Íslenskir innviðir fyrir örugg gagnaskipti hafa fengið evrópska viðurkenningu.

Straumurinn hefur nú verið skilgreindur sem mikilvæg lausn hjá Interoperable Europe Portal sem er vettvangur Evrópusambandsins fyrir lausnir sem styðja samvirkni og örugg gagnaskipti milli opinberra aðila.
Hvað er Straumurinn?
Straumurinn er ekki ein lausn, heldur margar lausnir sem saman gera hinu opinbera kleift að miðla gögnum á fjölbreyttan hátt, allt eftir því hvað hentar hverju sinni. X-Road sem er hluti af þessum lausnum hefur nú fengið þessa mikilvægu viðurkenningu.
Straumurinn byggir á gagnaflutningskerfum sem gera stofnunum kleift að deila gögnum sín á milli á öruggan og rekjanlegan hátt. Kerfið byggir á dreifðri uppbyggingu, án miðlægrar gagnageymslu. Öll gögn eru því geymd hjá þeirri stofnun sem á gögnin og þeim aðeins miðlað á öruggan hátt þegar þörf krefur.
Straumurinn auðveldar samstarf milli opinberra aðila því ekki þarf að smíða sérstaka tengingu á milli hvers og eins. Allar opinberar stofnanir og sveitarfélög í landinu geta nýtt sér kerfið til að flytja gögn sín á milli, með það að markmiði að bæta þjónustu við almenning.
Einfaldari þjónusta fyrir fólk og fyrirtæki
Markmiðið er að opinberir aðilar geti nýtt gögn sem þegar eru til, þannig fara gögn á milli stofnana en ekki fólk. Margar af stafrænum þjónustum hins opinbera reiða sig á Strauminn til að sækja og deila upplýsingum og þannig styður hann við einfaldari og skilvirkari þjónustu.
Næsta skref: X-Road 8
Viðurkenningin kemur á sama tíma og unnið er að undirbúningi nýrrar útgáfu, X-Road 8, sem væntanleg er í loftið síðar á árinu. Þessi nýja útgáfa verður stórt skref við þróun Straumsins og færir okkur sveigjanlegri innviði sem hannaðir eru fyrir skýjalausnir.