Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. desember 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Stormur eða rok gengur yfir landið

Stormur eða rok gengur yfir landiðSuðaustan stormur eða rok (20-28 m/s) gengur yfir landið í kvöld (mánudag) og nótt, fyrst SV- og V-lands með snjókomu eða slyddu. Búast má við miklum vindhviðum við fjöll (40-50 m/s). Þessu fylgir talsverð úrkoma S- og V-lands og jafnvel mikil á SA-landi.

Höfuðborgarsvæðið – horfur næsta sólarhringinnVaxandi suðaustan átt og snjókoma, 20-28 og slydda eða rigning í kvöld og hlánar. Snýst í suðvestan 8-13 upp úr miðnætti með éljum. Heldur hægari síðdegis á morgun og vægt frost.

Heimild: Veðurstofa Íslands