Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. febrúar 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Stolin vinnuvél fannst í gámi

Við reglubundna tollskoðun gáma á hafnarsvæði í síðustu viku vöknuðu grunsemdir um að í einum þeirra væri að finna illa fengna muni. Í gámnum, sem fyrirhugað var að senda úr landi, var m.a. að finna vinnuvél, sem hafði verið stolið á höfuðborgarsvæðinu í síðasta mánuði. Lagt var hald á vélina og henni síðan komið aftur í réttar hendur. Þess má geta að fíkniefnaleitarhundur tollgæslunnar aðstoðaði við leit í gámnum.