16. september 2026
16. september 2026
Stjórnsýsla og skjalasöfn - Rannsóknadagur Þjóðskjalasafns 2026
„Stjórnsýsla og skjalasöfn – Framkvæmd skjalavörslu og skjalastjórnar“ er nýtt rit sem Þjóðskjalasafn Íslands hefur gefið út. Rannsóknadagur Þjóðskjalasafns 2026 verður helgaður útgáfunni og munu höfundar ritsins kynna greinar sínar og ræða við gesti. Í lokin verður útgáfunni fagnað en dagskráin verður í fundarsal Þjóðskjalasafns að Laugavegi 162 fimmtudaginn 24. september kl. 13:00-16:00.

Í bókinni Stjórnsýsla og skjalasöfn - Framkvæmd skjalavörslu og skjalastjórnar sem Þjóðskjalasafn Íslands gefur nú út eru tíu greinar eftir níu höfunda sem takast á við ýmsa þætti í þróun langtímavörslu skjala, eftirlitshlutverk Þjóðskjalasafns Íslands og mikilvægi skjala í stjórnsýslunni. Á Rannsóknadegi Þjóðskjalasafns munu sex af höfundum bókarinnar kynna greinar sínar og taka þátt í pallborðsumræðum sem Kristín Benediktsdóttir umboðsmaður Alþingis stýrir. Fundarstjórn verður í höndum Helgu Jónu Eiríksdóttur, ritstjóra bókarinnar.
Opinber skjalasöfn gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Þau varðveita minni þjóðar, tryggja réttindi borgaranna og hag stjórnsýslunnar. Þjóðskjalasafn Íslands gegnir mikilvægu hlutverki sem framkvæmdaraðili skjalavörslu og skjalastjórnar á Íslandi. Þetta hlutverk er í brennidepli í þessu riti.
Starfsemi Þjóðskjalasafns Íslands hefur breyst mikið með tilkomu rafrænnar stjórnsýslu. Traust skjalahald stjórnsýslunnar er lykillinn að varðveislu og aðgengileika upplýsinga um hagsmuni og réttindi borgaranna eða stjórnsýslu og sögu þjóðarinnar. Þjóðskjalasafn hefur það hlutverk að setja reglur um skjalavörslu og skjalastjórn stjórnsýslunnar. Opinber skjalasöfn hafa eftirlit með framkvæmd þeirra, þannig að tryggð sé örugg langtímavarðveisla gagna fyrir notendur framtíðarinnar.
Útgáfunni verður fagnað í lok dagskrár og hægt verður að kaupa bókina á staðnum.
