11. júní 2025
11. júní 2025
Starfsfólk heiðrað við starfslok
Á ársfundi Sjúkrahússins á Akureyri voru þeir starfsmenn sem látið hafa af störfum vegna aldurs frá síðasta ársfundi heiðraðir. Þau hafa öll átt farsælan starfsferil hjá SAk og lagt sitt af mörkum til mikilvægs starfs í þágu heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi.

Á ársfundi Sjúkrahússins á Akureyri voru þeir starfsmenn sem látið hafa af störfum vegna aldurs frá síðasta ársfundi heiðraðir. Þau hafa öll átt farsælan starfsferil hjá SAk og lagt sitt af mörkum til mikilvægs starfs í þágu heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi. Reynsla og þekking þeirra hefur skipt máli fyrir starfsemina og skilur eftir sig spor í umhverfi þar sem fagmennska, samhugur og þjónusta við fólk skipta höfuðmáli. SAk þakkar þeim innilega fyrir þeirra framlag og farsælt samstarf í gegnum árin.
Þau sem heiðruð voru:
Árún Kristín Sigurðardóttir – Deild mennta, vísinda og gæða
Hannes Ragnar Reynisson – Húsumsjón
Helgi Haraldsson – Öryggisdeild Hildur Haraldsdóttir – Miðstöð heilbrigðisgagnafræðinga
Hulda Kristjánsdóttir – Miðstöð heilbrigðisgagnafræðinga
Jónas Reynisson – Húsumsjón
Irina Troskova – Eldhús
Kirsten Godsk – Sjúkraþjálfun
Ólöf Matthíasdóttir – Barnadeild
Sigurlína Örlygsdóttir – Miðstöð heilbrigðisgagnafræðinga
Svanhildur Sigurgeirsdóttir – Endurhæfingardeild/Kristnes
Vaka Jónsdóttir – Skrifstofa fjármála
Valgerður Stefánsdóttir – Eldhús
Þorvaldur Ísleifur Þorvaldsson – Skrifstofa fjármála