10. júní 2024
10. júní 2024
Starfsemistölur fyrir janúar til maí 2024
Samdráttur í fjölda ferðamanna sem leita á SAk.
Fjöldi dvalardaga þessa fimm mánuði var rúmlega 11.566 sem er um 17% fækkun frá því í fyrra en að sama skapi er fækkun sjúklinga sem þurfa að leggjast inn um 3,5%. Dvalir einstaklinga eru aðeins styttast og meðalfjöldi dvaladaga eru núna 4,7 dagar samanborið við 4,8 í fyrra.
Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru um 73% af heildarinnlögnum.
Að meðaltali eru um sex til sjö sjúklingar inniliggjandi á hverjum tíma sem eru búnir í meðferð og bíða eftir endurhæfingu eða plássi á hjúkrunarheimili.
Ef horft er til rúmanýtingar deilda þá er lyflækningadeild með 92,6% nýtingu, skurðlækningadeild með rúmlega 83% sem er ívíð minna en í fyrra og á það sama við um geðdeildina. Ástæðan er sú sama og að ofan að útskriftir eiga sér stað fyrr en áður og rúmanýting þannig betri.
Rúmlega 6.400 einstaklingar hafa fengið þjónustu á göngudeild og þar af 977 vegna krabbameinslyfjagjafar, samanborið við 886 lyfjagjafir á sama tíma í fyrra og er stöðug aukning í þeirri þjónustu.
Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku er fjöldi samskipta 7.540 samanborið við
7.482 á sama tíma í fyrra (sjá graf um komur á bráðamóttöku janúar til maí ár hvert). Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku hefur aukist lítillega og er nú um 45 mínútur sem er aðeins fyrir utan viðmið okkar um 40 mínútna bið eftir lækni.
Fjöldi skurðaðgerða þessa fimm mánuði ársins voru 1.125 sem er sambærilegt og í fyrra. Tæplega 29% aðgerða voru bráðaaðgerðir og gerviliðaaðgerðir 169 á móti 175 gerviliðaaðgerðum í fyrra.
Fjöldi myndgreiningarannsókna (án brjóstamynda) var rúmlega 17.000 og gerir það að meðaltali um 112 rannsóknir á dag sem er sambærilegt og verið hefur. Sambærileg starfsemi er á rannsóknadeild og lífeðlisfræðideild eins og í fyrra.
Enn heldur áfram aukning í fæðingum miðað við í fyrra en í ár hafa fæðst 168 börn samanborið við 160 börn á sama tíma í fyrra.
Sjá má lítilsháttar fækkun í komum og innnlögnum ósjúkratryggðra miðað við sama tímabil í fyrra.