5. desember 2024
5. desember 2024
Starfsemistölur fyrir janúar - nóvember 2024
Sjúkrahúsið á Akureyri birtir mánaðarlega starfsemistölur fyrir sjúkrahúsið.
Fjöldi dvalardaga á tímabilinu janúar til nóvember voru 24.410 sem er um 12% fækkun frá því í fyrra en að sama skapi er fækkun sjúklinga sem þurfa að leggjast inn um 10%. Meðalfjöldi dvalardaga allra deilda eru 4,5 dagar þannig að sjúklingar liggja mun styttra inni en áður. Hér vantar upplýsingar um fjölda einangruna (sem hefur aukist mikið) og hjúkrunarþyngd þar sem fjöldinn einn og sér lýsir ekki álagi á deild.
Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru um 75,4% af heildarinnlögnum.
Að meðaltali eru 9 sjúklingar inniliggjandi á hverjum tíma sem eru með gilt færni- og heilsumat eða slíkt í vinnslu.
Ef horft er til rúmanýtingar deilda þá er 85,4% nýting yfir árið á lyflækninga- og skurðlækningadeild.
Rúmlega 10.000 einstaklingar hafa fengið þjónustu á göngudeild og þar af 2.100 vegna krabbameinslyfjagjafar, sem er sambærilegt og í fyrr en þá voru 2.079 krabbameinslyfjagjafir.
Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku er fjöldi samskipta sambærilegur og í fyrra eða 16.231 samanborið við 16.572 á sama tíma í fyrra (sjá súlurit um komur á bráðamóttöku janúar til nóvember ár hvert). Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku er nú um 45 mínútur en viðmið okkar eru um 40 mínútna bið eftir lækni.
Fjöldi skurðaðgerða janúar til nóvember voru 2.225 sem er aðeins minna en í fyrra þegar 2434 aðgerðir voru gerðar yfir sama tímabil - fjöldinn segir þó ekki allt þar sem eðli og lengd aðgerða hefur mikið að segja. Tæplega 32% aðgerða voru bráðaaðgerðir og voru gerviliðaaðgerðir 296 á móti 311 gerviliðaaðgerðum í fyrra.
Fjöldi myndgreiningarannsókna (án brjóstamynda) var rúmlega 37.600 og gerir það að meðaltali um 112 rannsóknir á dag sem er sambærilegt og verið hefur.
Rannsóknir á rannsóknadeild hafa dregist aðeins saman undanfarin ár en fjöldi rannsókna á lífeðlisfræðideild er sambærilegur og verið hefur undanfarin ár eða um 8.160 rannsóknarverk.
Á ár hafa fæðst 370 börn samanborið við 382 börn á sama tíma í fyrra.
Töluverð fækkun er í komum og innnlögnum ósjúkratryggðra miðað við sama tímabil í fyrra. Bráðamóttakan hefur sinnt 657 ósjúkratryggðum einstaklingum og 102 hafa verið á legudeildum SAk en í fyrra höfðu verið lagðir inn
121 einstaklingar og um 750 einstaklingar leitað á bráðamóttökuna. Um er að ræða rúmlega
14% fækkun í komum á bráðamóttöku.