Fara beint í efnið

12. maí 2022

Starf sóttvarnalæknis laust til umsóknar

Embætti landlæknis auglýsir starf sóttvarnalæknis laust til umsóknar. Um starf sóttvarnalæknis fer samkvæmt sóttvarnalögum nr. 19/1997 með síðari breytingum, reglugerðum sem og öðrum lögum eftir því sem við á.

Landlæknir logo

Embætti landlæknis auglýsir starf sóttvarnalæknis laust til umsóknar. Um starf sóttvarnalæknis fer samkvæmt sóttvarnalögum nr. 19/1997 með síðari breytingum, reglugerðum sem og öðrum lögum eftir því sem við á. Í sóttvarnalögum segir að embætti landlæknis beri ábyrgð á framkvæmd sóttvarna undir yfirstjórn ráðherra. Enn fremur að við embætti landlæknis skuli starfa sóttvarnalæknir sem ber ábyrgð á sóttvörnum.  

Sóttvarnalæknir er jafnframt sviðsstjóri sóttvarnarsviðs og situr í framkvæmdastjórn embættisins. 

Umsóknarfrestur er til og með 13.06.2022

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2022.

Sótt er um starfið á Starfatorg þar sem m.a. finna má upplýsingar um helstu verkefni, ábyrgð og hæfniskröfur.