Fara beint í efnið

28. október 2026

Stafrænt Ísland verður ný ráðuneytisstofnun

Stafrænt Ísland verður ráðuneytisstofnun um næstu áramót og fær aukið hlutverk á sviði stafrænnar þjónustu, upplýsingatækni, gagnamála og gervigreindar. Breytingin markar nýjan kafla í þróun opinberrar þjónustu.

Á undanförnum árum hefur Stafrænt Ísland, í góðu samstarfi við stofnanir og fyrirtæki, lagt grunn að nýrri nálgun í opinberri þjónustu. Ísland.is hefur vaxið og þróast, sífellt fleiri þjónustuflokkar eru aðgengilegir á einum stað og sameiginlegir stafrænir innviðir hafa skapað ný tækifæri fyrir almenning og hið opinbera.

Árangurinn hefur sýnt hversu miklu er hægt að áorka þegar kraftar hins opinbera og einkaaðila eru sameinaðir og skýr framtíðarsýn liggur að baki.

Nú er komið að næsta kafla

Frá og með 1. janúar 2027 mun Stafrænt Ísland fá aukið hlutverk og enn fleiri tækifæri til að gera opinbera þjónustu einfaldari, aðgengilegri og skilvirkari.

Þannig munum við fá sterkari grundvöll til að halda áfram að einfalda líf fólks. Jafnframt munu bætast við ný verkefni og aukin ábyrgð á sviði gagnamála, gervigreindar og upplýsingatæknimála.

Verkefni og starfsfólk frá Umbru, þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins, mun í áföngum færast yfir og vera með okkur í hinni nýju stofnun. Umbra hefur á undanförnum árum byggt upp öruggt tækniumhverfi Stjórnarráðsins ásamt því að veita stuðning til stofnana. Með því að sameina rekstur upplýsingatækni hins opinbera á einn stað verður til sterkari eining sem mun bæta þjónustu og upplifun notenda með áherslu á nýtingu tækni og hagkvæmni í rekstri.

Markmiðið er skýrt: Að nýta tæknina betur í þágu fólks og atvinnulífs, einfalda samskipti almennings við hið opinbera og stuðla að hagkvæmari og skilvirkari rekstri.

Áframhaldandi samstarf við opinbera aðila og markaðinn

Árangur Stafræns Íslands hefur frá upphafi byggst á öflugu samstarfi. Það samstarf verður ekki síður mikilvægt í nýju skipulagi. Með því að samnýta krafta, þekkingu og tækni er hægt að draga úr tvíverknaði, nýta opinbert fé betur og skapa meira svigrúm til nýsköpunar.

Framtíðin er stafræn

Fram undan eru fjölmörg verkefni. Tækifærin sem felast í betri nýtingu tækni, gervigreindar og áframhaldandi þróunar stafrænnar þjónustu eru mikil.

Við erum stolt af því sem áunnist hefur, þakklát þeim fjölmörgu samstarfsaðilum sem hafa tekið þátt í vegferðinni og full eftirvæntingar fyrir því sem fram undan er.

Nánar má lesa um þessar breytingar á vef Fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.