Fara beint í efnið

12. október 2026

Stafrænt Ísland í lykilhlutverki í nýrri stefnu um opinbera þjónustu

Í fyrsta sinn hefur verið sett fram heildstæð stefna um opinbera þjónustu á Íslandi. Markmið hennar eru þrjú: betri, aðgengilegri og hagkvæmari þjónusta fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Stafrænt Ísland ber ábyrgð á eða tekur þátt í fjölmörgum aðgerðum sem eiga að færa þjónustuna nær þessum markmiðum á árunum 2026 til 2029.

Stefnan byggir meðal annars á þeim framförum sem orðið hafa í stafrænni þjónustu undanfarin ár. Meginreglan er „stafrænt fyrst“ og Ísland.is er þjónustugátt hins opinbera. Áhersla er jafnframt lögð á að þjónusta í persónu sé aðgengileg þeim sem vilja eða þurfa að nýta hana.

„Stefnan staðfestir það sem við höfum unnið að lengi: að opinber þjónusta sé einföld, aðgengileg og byggð í kringum fólk, ekki kerfin. Við hlökkum til að vinna að henni með stofnunum og sveitarfélögum um allt land,“ segir Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands.

Einfaldari samskipti við hið opinbera

Meðal verkefna Stafræns Íslands er að fjölga stofnunum sem nýta þjónustukerfi Ísland.is. Það safnar beiðnum og erindum stofnana á einn stað og gefur góða yfirsýn yfir veitta þjónustu. Þá verður unnið að því að draga úr endurtekinni upplýsingagjöf svo einstaklingar og fyrirtæki þurfi síður að skila sömu gögnum oftar en einu sinni.

Forvirk þjónusta verður með tíð og tíma lykilstef í opinberri þjónustu, að þjónusta sé veitt án þess að notandinn þurfi nokkuð að gera. Stafrænt Ísland mun kortleggja fleiri tækifæri til slíkrar þjónustu í gegnum Ísland.is, ásamt því að unnið verður að stafrænni þjónustu þvert á landamæri, svo sem að hægt verði að nota rafræn skilríki í öðrum Evrópuríkjum.

Þjónusta sem fleiri geta nýtt

Stafrænt Ísland vinnur áfram að því að gera Ísland.is aðgengilegan sem flestum og mun hvetja fleiri opinbera aðila til að nýta kjarnaþjónustur Stafræns Íslands til að auka aðgengi og bæta þjónustu, til dæmis með gervigreindaraðstoð sem getur svarað fyrirspurnum allan sólarhringinn.

Betri grunnur fyrir þjónustu framtíðarinnar

Stafrænt Ísland styður stofnanir við endurnýjun eldri upplýsingakerfa og vinnur að öruggari miðlun gagna á milli þeirra. Slík vinna, ásamt öruggari miðlun gagna milli stofnana, getur einfaldað ferla og undirbúið grunn að frekari þróun sem auka sjálfvirkni og þjónustu.

Stefnan var unnin undir forystu fjármála- og efnahagsráðuneytisins í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og önnur ráðuneyti, að undangengnu víðtæku samráði.

Lesa má stefnuna í heild á vef Stjórnarráðsins.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.