Fara beint í efnið

28. apríl 2023

Stafræna spjallið: Mínar síður Ísland.is

Mínar síður Ísland.is er umræðuefni Stafræna spjallsins að þessu sinni en gestir spjallsins eru þau Lárus Long deildarstjóri upplýsingatæknideildar Samgöngustofu, Ragnheiður Þorleifsdóttir framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar og Ragnhildur Helga Ragnarsdóttir vörustjóri hjá Stafrænu Íslandi.

stafr spjallid minarsidur upphafsskjar

Í Stafræna spjallinu er stafræn umbreyting rædd á mannamáli. Markmiðið er að auka skilning og opna augu okkar fyrir þeim tækifærum sem leynast í stafrænni þróun. Hið stafræna snýst nefnilega um fólk og því ekkert mikilvægara en að fólk skilji og treysti stafrænni þjónustu.

Að þessu sinni snýst spjallið um Mínar síður Ísland.is en Mínar síður sem er ein af þeim kjarnaþjónustum sem standa stofnunum til boða hjá Stafrænu Íslandi.

En hvað þýðir þetta fyrir notendur sem heima sitja, hefur þetta einhver áhrif á okkar daglega líf? Hver er hugsunin með Mínum síðum Ísland.is og hver er tilgangurinn?

Gestir Stafræna spjallsins eru þau Lárus Long deildarstjóri upplýsingatæknideildar Samgöngustofu, Ragnheiður Þorleifsdóttir framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar og Ragnhildur Helga Ragnarsdóttir vörustjóri hjá Stafrænu Íslandi.

Vigdís Jóhannsdóttir markaðsstjóri Stafræns Ísalnds leiðir spjallið.