Fara beint í efnið

12. apríl 2023

Stafræna spjallið: Innskráning fyrir alla

Innskráning fyrir alla er umræðuefni Stafræna spjallsins að þessu sinni en gestir spjallsin eru þau Adeline Tracz verkefnastjóri nýþróunar frá Landsspítalanum, Eiríkur Nilsson stofnandi og tæknistjóri hjá Aranja og Hrefna Lind Ásgeirsdóttir tækni- og þróunarstjóri Stafræns Íslands.

stafr spj innskraningfalla upphafsrammi

Í Stafræna spjallinu ræðum við stafræna umbreytingu á mannamáli. Markmiðið er að auka skilning og opna augu okkar fyrir þeim tækifærum sem leynast í stafrænni þróun. Hið stafræna snýst nefnilega um fólk og því ekkert mikilvægara en að fólk skilji og treysti stafrænni þjónustu.
Að þessu sinni snýst spjallið um verkefnið Innskráning fyrir alla, en það er ein af þeim kjarnaþjónustum sem standa stofnunum til boða hjá Stafrænu Íslandi.
En hvað þýðir þetta fyrir notendur sem heima sitja, hefur þetta einhver áhrif á okkar daglega líf? Hver er hugsunin með Innskráningu fyrir alla og hver er tilgangurinn?
Gestir stafræna spjallsins að þessu sinni eru þau Adeline Tracz verkefnastjóri nýþróunar frá Landsspítalanum, Eiríkur Nilsson stofnandi og tæknistjóri hjá Aranja og Hrefna Lind Ásgeirsdóttir tækni- og þróunarstjóri Stafræns Íslands.
Vigdís Jóhannsdóttir markaðsstjóri Stafræns Íslands leiðir spjallið.