Fara beint í efnið

25. september 2023

Stafræn skref 2023 – viðurkenningahafar

Óskum Fjársýslunni, Samgöngustofu, Sjúkratryggingum og sýslumönnum til hamingju með viðurkenningar fyrir Stafræn skref sem stofnanirnar tóku á árinu.

Stafræn skref 2023 - vinningshafar

Stafrænt Ísland veitti nú öðru sinni samstarfsstofnunum viðurkenningu fyrir þau Stafrænu skref sem þær hafa tekið.

Sýslumenn - 9 Stafræn skref

Sýslumenn eru fyrsta stofnunin til að taka öll Stafrænu skrefin.

  • Stafrænt pósthólf, Innskráning fyrir alla, Umsóknarkerfi Ísland.is, Mínar síður Ísland.is, vefsíða á Ísland.is, spjallmennið Askur, þjónustuvefur, Ísland.is appið og Straumurinn.

Sjúkratryggingar – 8 Stafræn skref

  • Stafrænt pósthólf, Innskráning fyrir alla, Umsóknarkerfi Ísland.is, Mínar síður Ísland.is, vefsíða á Ísland.is, spjallmennið Askur, þjónustuvefur og Straumurinn.

Samgöngustofa - 6 Stafræn skref

  • Innskráning fyrir alla, vefsíða á Ísland.is, Umsóknarkerfi Ísland.is, Mínar síður Ísland.is, Ísland.is appið og Straumurinn.

Fjársýslan – 6 Stafræn skref

  • Stafrænt pósthólf, Innskráning fyrir alla, Umsóknarkerfi Ísland.is, Mínar síður Ísland.is, vefsíða á Ísland.is og Straumurinn.

Þá voru þrjár stofnanunum sérstaklega nefndar en þær hafa unnið þétt með Stafrænu Íslandi síðastliðið ár og allar tekið 5 Stafræn skref.

  • Fiskistofa

  • Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

  • Vinnueftirlitið

Stafrænu skrefinu eru hvataverðlaun fyrir opinbera aðila og er ætlað að ýta undir nýtingu fjárfestingar og markmið ráðuneytisins með því að veita þeim opinberu aðilum viðurkenningu sem nýta opin og sameiginleg tól sem þróuð hafa verið af Stafrænu Íslandi.

Hvataverðlaunin Stafræn skref voru veitt í fyrsta skipti árið 2022 en skrefin eru níu talsins.

Á vef Stafræns Íslands geta stofnanir flett upp og fylgst með þeim Stafrænu skrefum sem þær hafa tekið með Stafrænu Íslandi. Taka skal fram að ekki eiga öll skref við allar stofnanir og að skrefin munu þróast eftir því sem fram líða stundir.

Skoða Stafræn skef opinberra aðila.