Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. febrúar 2026

Stafræn birting skjala í saka- og dómsmálum

Stigin hafa verið skref að markvissari miðlun skjala/gagna og upplýsinga í réttarvörslukerfinu í gegnum Mínar síður á Ísland.is. Einstaklingum geta nú borist tilkynningar frá héraðsdómstólum og lögreglu inn á Mínum síðum, hvort sem um er að ræða ákærur eða dóma.

Mynd: Stjórnarráðið/Hari

Með þessari stafrænu birtingu er unnið að því að samræma boðleiðir stjórnvalda til borgaranna, stytta málsmeðferðartíma í dómskerfinu og auka öryggi með markvissari aðgangsstýringu að mikilvægum gögnum – án þess að fórna réttaröryggi. Þannig er búið að fækka þeim tilvikum þar sem hafa þarf upp á fólki á heimili þess eða vinnustað til þess að birta fyrir þeim gögn frá lögreglu og dómstólum.

Hvað þýðir þetta fyrir mig?

• Ef ég er ákærð/ur og fæ boðun í dóm?
Berst þér skjal í pósthólfið þitt á Mínum síðum á Ísland.is þar sem fram kemur hvað þú þarft að gera og getur lesið ákæruna og bótakröfu fylgi hún máli. Þar getur þú líka staðfest móttöku fyrirkallsins og valið þér verjanda. Upplýsingar um málið þitt eru þá aðgengilegar undir hnappinum Lög og regla á Mínum síðum Ísland.is.

• Ef ég fæ dóm?
Finnur þú dóminn undir hnappinum Lög og regla á Mínum síðum Ísland.is ásamt leiðbeiningum sem fylgja niðurstöðu dómsins. Þú getur móttekið dóminn og tekið afstöðu til hans. Í dag eru þeir dómar birtir á Ísland.is sem fara í gegnum stafræna málsmeðferð.

Hvað er fyrirkall?
Lögformleg tilkynningu frá lögreglu/sýslumanni/dómstól um að einstaklingur eða lögaðili eigi að uppfylla ákveðna skyldu, eins og að mæta fyrir dóm, veita upplýsingar eða greiða gjald.

Innleiðing sem skilar árangri

Fyrstu stafrænu ákærurnar voru birtar í umferðarlagabrotum árið 2024 og árið 2025 hófst stafræn birting dóma í þeim tilvikum þar sem lögregla annast hana. Góð reynsla er komin á þessa miðlunarleið og árangurinn sýnilegur – þannig eru nú 80% ákæra og dóma í umferðarlagabrotum birt einstaklingum með stafrænum hætti þar sem viðkomandi staðfestir móttöku skjala sjálfur. Í því samhengi er ekki lengur þörf á mannafla við það eitt að koma skjölum til fólks með sannreynanlegum hætti.

Ótvírætt hagræði er af þessari framkvæmd en sem dæmi má nefna eru um 1800 ákærur og fyrirköll birt á landsvísu á ári hverju.

Þétt samvinna

Dómsmálaráðuneytið hefur verið leiðandi í að stafvæða ferla sem vinnast þvert á stofnanir réttarvörslukerfisins og er þessi þróun afrakstur samvinnu ákæruvaldsins, ríkislögreglustjóra, dómstólasýslunnar og Stafræns Íslands, verkefnastofu innan fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem fer með stefnumótun stjórnvalda á sviði upplýsingatækni. Verkefnið er unnið með fyrirtækjum í hugbúnaðarþróun á Íslandi sem starfa innan rammasamnings við Stafrænt Ísland. Með þéttri samvinnu hefur tekist að færa ferla sem áður voru þungir og tímafrekir yfir í stafrænt umhverfi, þar sem hraði, rekjanleiki og skilvirkni eru í forgrunni.

Kjarnaþjónustur Stafræns Íslands, eins og sameiginleg þjónustugátt Ísland.is, Stafrænt pósthólf, Mínar síður og innskráningar- og umboðskerfi, eru nú í útbreiddri notkun hjá opinberum aðilum sem nýta þær til að draga úr margverknaði og mögulegri sundurleitni í tæknilausnum. Á bak við stafræna birtingu sem þessa liggur umfangsmikil tæknileg þróun og innleiðing þar sem margar stofnanir og aðilar koma að – tenging milli mismunandi upplýsingakerfa, trygging öryggis og aðgangsstýringar og rekjanleiki samskipta. Lykilforsenda þess að stór þróunarverkefni gangi vel er öflug samvinna hagsmunaaðila og hugbúnaðarteyma – bæði innan stofnana ríkisins og hjá þeim teymum sem starfa innan rammasamnings Stafræns Íslands.

Skýr lagagrundvöllur

Með lögum um stafrænt pósthólf stjórnvalda var árið 2021 komið á fót miðlægum og öruggum samskiptaleiðum milli bæði hins opinbera og einstaklinga og lögaðila við hið opinbera.

Þessu var síðan fylgt enn frekar eftir með breytingum á lögum um meðferð sakamála árið 2024, þar sem sérstaklega var heimilað að birta ákærur og fyrirköll í stafrænu pósthólfi.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.