Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. febrúar 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sprengjuhótun – aðgerðum lokið

Sprengjuhótun barst á netfang Menntaskólans við Hamrahlíð í nótt og því fellur skólahald þar niður framan af degi. Um leið og lögreglu var tilkynnt um málið brást hún þegar við og gripið var til viðeigandi ráðstafana, sem miðuðu að því að leita af sér allan grun. Aðgerðum á vettvangi er lokið og hafa skólastjórnendur verið upplýstir um það, en þeir taka ákvörðun um skólahald í dag.

Lögreglan telur sig vita hver stendur að baki hótuninni, en sá er staddur erlendis og hefur áður haft í hótunum með þessum hætti.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.