Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. október 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sprengiefni stolið

Á fimmtudag fékk lögregla tilkynningu um innbrot og þjófnað úr sprengiefnagámi í Þormóðsdal ofan við Hafravatn. Um 300 kg af dýnamíti var stolið auk nokkurs magns af kjarna, hvellhettum og sprengihnalli. Rannsókn málsins stendur yfir en hefur ekki borið árangur enn sem komið er. Þýfið, hvers varsla er stórhættuleg, er því ófundið og ekki vitað hver eða hverjir þarna voru að verki eða í hvaða tilgangi.

Lögregla biður alla þá er kunna að hafa upplýsingar er gagnast gætu við rannsókn málsins að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000 eða 800 5005.