11. ágúst 2026
11. ágúst 2026
Sólmyrkvinn á morgun – gætum öryggis
Á morgun, 12. ágúst, verður almyrkvi á sólu sýnilegur á vestanverðu Íslandi. Í öðrum landshlutum verður deildarmyrkvi, þar sem tunglið mun ekki ná að hylja sólina að fullu. Hvort sem fylgst er með almyrkvanum eða deildarmyrkvanum er mikilvægt að gæta fyllsta öryggis. Sé horft beint í sólina þarf ávallt að nota sérstök sólmyrkvagleraugu. Venjuleg sólgleraugu eru ekki örugg til þess að horfa á sólina í sólmyrkva.

Notið aðeins viðurkennd sólmyrkvagleraugu
Til að sólmyrkvagleraugu teljist örugg þurfa þau meðal annars að uppfylla alþjóðlega öryggisstaðalinn ISO 12312-2 og vera með CE-merkingu.
Skoða þarf gleraugun vandlega áður en þau eru notuð. Þau mega ekki vera rifin, rispuð eða á annan hátt skemmd. Ef einhverjar skemmdir eru á gleraugunum skal ekki nota þau.
Sérstaklega þarf að gæta að öryggi barna. Börn eiga að nota sólmyrkvagleraugu undir eftirliti fullorðinna og fullorðnir ættu að tryggja að gleraugun séu heil, óskemmd og notuð rétt.
Á vef Ísland.is og Sólmyrkva 2026 má finna upplýsingar um þær kröfur sem sólmyrkvagleraugu þurfa að uppfylla og hvernig nota á þau með öruggum hætti:
Öryggi og augnheilsa á vef Ísland.is
Um öryggi augna á vef Sólmyrkvi 2026
Aldrei horfa í sólina í gegnum myndavél, kíki eða sjónauka
Sérstaklega þarf að varast að horfa í sólina í gegnum myndavél, kíki eða sjónauka án viðeigandi sólarsíu því það getur samstundis valdið alvarlegum skaða á augum. Sólmyrkvagleraugu veita ekki vernd þegar slík tæki eru notuð.
Ef fylgst er með sólmyrkvanum í gegnum myndavél, kíki eða sjónauka þarf að nota sérstaka sólarsíu sem er hönnuð fyrir viðkomandi tæki. Sólarsían þarf að vera tryggilega fest fremst á tækinu, þannig að hún síi sólarljósið áður en það berst inn í tækið. Mælt er með því að leita ráðgjafar sérfræðings áður en slíkur búnaður er notaður til að fylgjast með sólinni.
Sólmyrkvagleraugun má einungis taka af sér í almyrkvanum
Þeir sem fylgjast með atburðinum á svæði þar sem almyrkvi verður geta tekið sólmyrkvagleraugun af sér í þá stuttu stund sem almyrkvinn stendur yfir, það er þegar tunglið hylur sólina að fullu. Þá verður hægt að sjá kórónu sólarinnar, sem teygir sig út frá tunglinu sem skyggir á sólina.
Almyrkvinn stendur yfir í um eina mínútu á höfuðborgarsvæðinu og um tvær mínútur vestast á landinu, við Látrabjarg.
Um leið og sólin fer að gægjast undan tunglinu á ný þarf að setja sólmyrkvagleraugun strax aftur á sig.
Við hvetjum alla til að njóta þessa einstaka náttúrufyrirbæris – en gera það með öryggið í fyrirrúmi.