8. september 2011
8. september 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Sofnaði við stýrið
Betur fór en á horfðist þegar bíll valt á Suðurlandsvegi um miðjan dag í gær. Ökumanninn sakaði ekki, eftir því sem best er vitað, en undir stýri var kona á sextugsaldri en talið er að hún hafi sofnað við aksturinn. Óhappið minnir okkur á mikilvægi þess að ökumenn hafi einbeitinguna í lagi. Sæki að þeim syfja eða þreyta er nauðsynlegt að gera hlé á akstrinum og halda síðan ferðinni áfram þegar viðkomandi ökumaður hefur náð að hvílast. Sé það ekki gert kann að fara mjög illa.
Frá Suðurlandsvegi.