4. október 2006
4. október 2006
Þessi frétt er meira en árs gömul
Sofnaði undir stýri
Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af ökumanni í austurbænum í nótt. Sá hafði sofnað undir stýri en til allrar lukku var bíllinn ekki á ferð þegar það gerðist. Bíllinn var hins vegar í gangi þegar að var komið og því þótt rétt að athuga með ökumanninn. Hann reyndist allsgáður.
En það voru fleiri vegfarendur sem áttu erfitt með að halda sér vakandi. Lögreglan var kölluð til í gærkvöld vegna tveggja manna sem sváfu djúpum svefni í strætisvagni. Vagnstjórinn hafði árangurslaust reynt að vekja þessa farþega og það tókst loksins með aðstoð lögreglunnar.