Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. ágúst 2025

Snareygðir misindismenn

Í ársbyrjun 1975 var stolið rúmlega 30 þúsund krónum (þávirði) úr Útvegsbankanum sáluga í Kópavogi.

Á þessum tíma stóðu yfir framkvæmdir við húsnæði bankans og af þeirri ástæðu áttu þjófarnir greiða leið inn í bankann í skjóli nætur. Innandyra var m.a. að finna allnokkrar fötur með smámynt í og þeim stálu þjófarnir. Á litlu var að byggja við rannsókn málsins, en einhverjir voru þó yfirheyrðir án þess þó að tækist að upplýsa þjófnaðinn.

Segja má að málið hafi fallið í gleymsku allt þar til í sumar að einn þjófanna gaf sig fram við lögregluna og greindi frá öllu saman. Hvað varð til þess að maðurinn játaði sök hálfri öld síðar skal ósagt látið, en sjálfsagt er alltaf gott að létta á samviskunni. Við heimsóknina á lögreglustöðina sagði maðurinn frá því að hann hefði verið að verki ásamt nokkrum vinum sínum, en þeir voru allir um fermingaraldur á þessum tíma.

Peningana földu þeir síðan á góðum stað og gengu í þá eftir þörfum. Aðspurður nánar hvað varð um peningana sagði maðurinn að þeir vinirnir hefðu notað þá til að gera sér glaðan dag. Í því fólst helst að gera vel við sig í mat og drykk og einnig að borga fyrir þá dægrastyttingu sem var vinsæl hjá unglingum á áttunda áratugnum. Um hugsanlega refsingu fyrir brotið er það að segja að málið er fyrnt.

Við uppflettingu í dagblöðunum frá árinu 1975 er að finna umfjöllun um málið í Mánudagsblaðinu. Þar er talað um bankarán og ræningjarnir sagðir vera snareygðir misindismenn!