Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. september 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Snákur haldlagður í Breiðholti

Lögreglumenn geta átt von á ýmsu í starfi sínu eins og glögglega kom í ljós í Breiðholti á dögunum. Í húsi í hverfinu reyndist vera snákur en dýrið var tekið í vörslu lögreglu og síðan flutt að Keldum þar sem gerðar voru viðeigandi ráðstafanir. Um var að ræða svokallaðan kornsnák og var hann um einn metri að lengd.

Kornsnákur sem fannst í Breiðholti.