Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. júlí 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Snákar og köngulær

Það var heldur óvenjuleg sjón sem blasti við lögreglumönnum þegar þeir komu í íbúð í fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu á dögunum. Innandyra voru fimm snákar, fjórar köngulær, kakkalakki og ýmis önnur skordýr sem við kunnum ekki að nefna. Þar var einnig að finna eðlu, mýs og hamstra. Fátt var um svör þegar húsráðandi var spurður um dýrahaldið. Dýrin voru flutt að Keldum þar sem gerðar voru viðeigandi ráðstafanir. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem voru teknar á vettvangi.