10. maí 2025
10. maí 2025
Snákar haldlagðir
Það er ýmislegt sem getur komið upp á vaktinni og lögreglumenn þurfa að vera við öllu búnir.

Að eiga við snáka er ekki daglegur viðburður, en gerist endrum og eins. Þessir tveir fundust í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu og voru haldlagðir, en hér er um að ræða brot á lögum um innflutning dýra. Í framhaldinu voru gerðar viðeigandi ráðstafanir, en í því felst að lóga og farga dýrum sem þessum.