Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. ágúst 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Smygl.

Lögreglan og tollgæslan á Vestfjörðum lagði hald á 38 lítra af sterku áfengi og 37.000 sígarettur um borð í flutningaskipi sem kom til lestunar á Bíldudal sl. miðvikudag. Varningurinn fannst við leit í skipinu og var tilbúinn til hífingar frá borði. Talið er að hann hafi átt að fara til dreifingar hér á landi.

Einn skipverji var handtekinn vegna málsins. Honum var sleppt í gærkveldi að lokinni yfirheyrslu. Málið telst upplýst og er það komið til ákærumeðferðar.