Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. febrúar 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Slys í hlíðum Skarðsheiðar

Um tvöleytið í dag barst tilkynning um slys í Skarðsheiði.

Þarna hafði hópur fólks verið í göngu þegar tvennt úr hópnum féll niður hlíð og slasaðist. Slysstaðurinn var í 6-700 metra hæð og er talið að fólkinu hafi skrikað fótur í hálku og fallið og runnið um 100 metra niður hlíðina. Lögregla og sjúkralið ásamt björgunarsveitum frá Akranesi, Borgarnesi og úr sveitum Borgarfjarðar fóru þegar á vettvang ásamt lækni frá Akranesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var ræst út og flutti hún fólkið á Landsspítalann í Fossvogi.

Þau sem slösuðust voru karl á fimmtugsaldri og kona á sjötugsaldri.

Göngufólkinu sem með þeim var verður boðið upp á áfallahjálp.

Málið í rannsókn og frekari frétta af atburðinum er ekki að vænta að svo komnu máli.