23. mars 2023
23. mars 2023
Sleppa á grásleppu sem veidd er í þorskfiskanet
Fiskistofa vill árétta að skip sem stunda netaveiðar, aðrar en grásleppuveiðar samkvæmt sérstöku sérstöku leyfi Fiskistofu, er skylt að sleppa allri grásleppu sem er lifandi í netum þegar þau eru dregin.
Fiskistofa mun bregðast við ef skip verða ítrekað uppvís að löndun óeðlilegs magns af grásleppu, enda er ljóst að megnið af grásleppu er lifandi í þorskanetum sem dreginn eru með reglubundnum hætti.