Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. júní 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Slasaðist í hörðum árekstri

Nokkuð var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Farþegi slasaðist í hörðum árekstri tveggja bifreiða á gatnamótum Stekks og Reykjanesbrautar. Bifreiðin sem hann var í var ekið frá stöðvunarskyldu út á Reykjanesbraut og í veg fyrir aðra bifreið. Farþeginn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og þaðan á Landspítala. Bílarnir voru fjarlægðir af vettvangi með dráttarbifreið.

Þá endaði bifreið ökumanns, sem sofnaði undir stýri, utan vegar austan við Grindavíkurveg. Bifreiðin var óökufær eftir atvikið og var fjarlægð með dráttarbifreið.