Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. maí 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Skýrsla greiningardeildar um skipulagða glæpastarfsemi 2019

Meginniðurstaða meðfylgjandi skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra er sú að áhætta vegna helstu brotaflokka skipulagðrar glæpastarfsemi á Íslandi fari enn vaxandi. Samkvæmt áhættulíkani löggæsluáætlunar er niðurstaðan „gífurleg áhætta“ við mat á skipulagðri glæpastarfsemi.

Þessi niðurstaða er í samræmi við þá sem greiningardeild ríkislögreglustjóra birti í skýrslu um skipulagða glæpastarfsemi árið 2017 þar sem sagði m.a:

„Að öllu þessu virtu verður sú ályktun dregin að núverandi aðstæður séu, að öllu óbreyttu, ekki til þess fallnar að hamla gegn skipulagðri brotastarfsemi í landinu.“ … „Að framangreindu má ljóst vera að dregið hafi úr getu lögreglu til að sinna mörgum þeirra málaflokka sem falla undir hugtakið „skipulögð glæpastarfsemi“.“

Líkan löggæsluáætlunar kveður á um fjögur áhættustig. Þau eru: lítil áhætta, möguleg áhætta, mjög mikil áhætta og gífurleg áhætta. Þeim er lýst eftir alvarleika sem grænu, gulu, rauðu og svörtu.

Allir fimm brotaflokkar sem fjallað er um í skýrslunni hafna í rauðu eða svörtu þrepi.Hafa ber í huga að matið lýsir þeirri áhættu sem lögregla telur að skipulögð glæpastarfsemi valdi. Það felur ekki í sér heildareinkunn fyrir öryggisstigið í landinu. Ísland telst enn sem fyrr afar öruggt samfélag í alþjóðlegum samanburði. Á hinn bóginn telur greiningardeild ríkislögreglustjóra það skyldu sína að benda á þróun sem kann að breyta þeirri stöðu. Með sama hætti er mikilvægt að upplýsa almenning um þetta stöðumat.Niðurstöður skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra eru í samræmi við það mat Evrópulögreglunnar (Europol) frá í aprílmánuði 2019 að skipulögð glæpastarfsemi sé helsta ógnin við öryggi ríkja álfunnar.

Skýrsluna má nálgast hér.