Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. október 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Skráningarnúmer fjarlægð af ökutækjum

Mikið er um ótryggð og óskoðuð ökutæki á höfuðborgarsvæðinu en lögreglan hvetur eigendur og umráðamenn þeirra til að gera þar bragarbót á. Undanfarið hafa skráningarnúmer verið fjarlægð af mörgum ökutækjum sem uppfylltu ekki ákvæði um skoðun eða voru ótryggð. Lögreglan heldur eftirlitinu áfram og hvetur ökumenn til að passa upp á þetta svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða.