7. mars 2014
7. mars 2014
Þessi frétt er meira en árs gömul
Skráningarnúmer fjarlægð af 60 ökutækjum
Það sem af er vikunni hefur lögreglan fjarlægt skráningarnúmer af um sextíu ökutækjum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu, en þau voru ýmist ótryggð eða óskoðuð og jafnvel hvorutveggja. Mjög mikið er um ótryggð og óskoðuð ökutæki í umdæminu en lögreglan hvetur eigendur og umráðamenn þeirra til að gera þar bragarbót á. Lögreglan heldur eftirlitinu áfram og hvetur ökumenn til að passa upp á þetta svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða.