9. mars 2012
9. mars 2012
Þessi frétt er meira en árs gömul
Skráningarnúmer fjarlægð af 250 ökutækjum
Í síðasta mánuði voru skráningarnúmer fjarlægð af um tvö hundruð og fimmtíu ökutækjum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu, en þau voru ýmist ótryggð eða óskoðuð og jafnvel hvorutveggja. Mjög mikið er um ótryggð og óskoðuð ökutæki í umdæminu en lögreglan hvetur eigendur og umráðamenn þeirra til að gera þar bragarbót á. Lögreglan heldur eftirlitinu áfram og hvetur ökumenn til að passa upp á þetta svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða.