Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. febrúar 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Skráningarnúmer fjarlægð af 236 ökutækjum

Í síðasta mánuði voru skráningarnúmer fjarlægð af tvö hundruð þrjátíu og sex ökutækjum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu, en þau voru ýmist ótryggð eða óskoðuð og jafnvel hvorutveggja. Mjög mikið er um ótryggð og óskoðuð ökutæki í umdæminu en lögreglan hvetur eigendur og umráðamenn þeirra til að gera þar bragarbót á. Lögreglan heldur eftirlitinu áfram og hvetur ökumenn til að passa upp á þetta svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða.