Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. apríl 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Skráningarmerki fjarlægð

Lögreglan á Suðurnesjum hefur fjarlægt skráningarmerki af þrettán bifreiðum á síðustu dögum þar sem þær voru ótryggðar, óskoðaðar eða hvoru tveggja. Þá hafði lögregla afskipti af ökumanni sem var á ferðinni í fyrrakvöld á bifreið sem var án allra skráningarmerkja. Hann var að sjálfsögðu stöðvaður og reyndist hann vera án ökuréttinda. Hafði lögregla áður haft afskipti af sama aðila vegna ítrekaðra brota á umferðarlögum.