Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. nóvember 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Skotárás í Reykjavík

Laust fyrir klukkan átta í gærkvöld barst lögreglu tilkynning um að skotum hefði verið hleypt af í Bryggjuhverfinu í Reykjavík. Engan sakaði en skemmdir urðu á bifreið. Lögreglan hefur unnið sleitulaust að rannsókn málsins og notið við það aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. Manna er leitað í tengslum við rannsókn málsins en það er talið tengjast fíkniefnaviðskiptum. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.