Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. desember 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Skotárás í Háaleitishverfi – gæsluvarðhald til 4. janúar

Fjórir karlar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 4. janúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á skotárás í Háaleitishverfinu á aðfangadag. Það var um hádegisbil í gær sem fjórmenningarnir komu að húsi í fyrrnefndu hverfi og virtust þeir eiga eitthvað vantalað við húsráðandann. Atburðarásin liggur ekki alveg fyrir en þó er ljóst að skotið var á húsið því á vettvangi mátti sjá að hleypt hafði verið af haglabyssu en ummerki þess voru greinileg á útidyrahurð. Engan sakaði og voru árásarmennirnir handteknir þegar þeir reyndu að komast undan. Þá var lagt hald á haglabyssu sem fannst á vettvangi. Fjórmenningarnir, sem eru á þrítugs- og fertugsaldri, hafa allir áður komið við sögu hjá lögreglu.