Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. febrúar 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Skotárás í Grafarholti – tveir í haldi

Tveir karlar eru í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skotárás í Grafarholti í nótt. Annar var handtekinn í morgun líkt og áður hefur komið fram, en hinn var handtekinn í umdæminu eftir hádegi. Mennirnir eru á þrítugsaldri. Þá hefur verið lagt hald á ökutæki og skotvopn, sem lögreglan telur að hafi verið notað við verknaðinn. Lögreglan var með mikinn viðbúnað eftir að tilkynning um skotárásina barst í nótt enda málið mjög alvarlegt. Embættið hefur notið aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við aðgerðir vegna þess.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu, en fréttatilkynning verður aftur send fjölmiðlum eftir því sem rannsókn málsins vindur fram.