12. ágúst 2016
12. ágúst 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Skotárás í Breiðholti – áframhaldandi gæsluvarðhald
Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til fjögurra vikna á grundvelli almannahagsmuna í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á skotárás í Breiðholti um síðustu helgi. Annar mannanna var handtekinn á laugardag, en hinn á mánudag.