12. janúar 2011
12. janúar 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Skotárás – fjórir í gæsluvarðhaldi
Tveir karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 1. febrúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Mennirnir voru handteknir eftir skotárás í Háaleitishverfi á aðfangadag og sátu í gæsluvarðhaldi til 4. janúar. Þá var lögð fram krafa um fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald yfir þeim en á hana var ekki fallist í Héraðsdómi Reykjavíkur en nú hefur niðurstöðunni verið snúið við í Hæstarétti. Fyrir voru tveir aðrir karlar í haldi lögreglu vegna sama máls en þeir voru líka handteknir á aðfangadag og var gæsluvarðhald yfir þeim síðan framlengt um fjórar vikur þann 4. janúar, eða til 1. febrúar.
Fjórmenningarnir, sem eru á þrítugs- og fertugsaldri og hafa allir áður komið við sögu hjá lögreglu, hafa játað aðild sína að málinu. Rannsókn þess er lokið en málið var sent embætti ríkissaksóknara til frekari meðferðar.