Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. mars 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Skipulögð brotastarfsemi – áframhaldandi gæsluvarðhald

Tveir karlar og ein kona voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðuð í áframhaldandi tveggja vikna gæsluvarðhald, eða til 9. apríl, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fólkið var handtekið í byrjun mánaðarins í kjölfar umfangsmikilla aðgerða, en tilefni þeirra var rökstuddur grunur um skipulagða brotastarfsemi, sem talin er varða mansal, skjalafals, peningaþvætti, brot á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga.