Fara beint í efnið

16. febrúar 2023

Skiptimarkaður með aflamark - tilboð óskast

Skiptimarkaður með aflamark er opinn frá 16. - 23. febrúar.

net hendur

Skiptimarkaðurinn opnar í dag fimmtudaginn 16. febrúar 2023 kl. 15:00 en lokar fimmtudaginn 23. febrúar 2023 kl 14:00.

Við mat á tilboðum er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar sem er fyrir þorsk 433,17 kr/kg. Hægt er að gera tilboð í neðangreinda tegund fyrir aflamark í þorski.

Tegund

Þorskígildi

Magn

Eining

Loðna

0,11

2.278

Tonn

Tilboð er sent í gegnum UGGA. Tilboðsmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Staðfesting er send sjálfkrafa um móttöku tilboðs. Umsækjendur geta afturkallað/hætt við tilboð en tekið er fram að afturköllun á tilboði eftir tilboðsfrest er óheimil.

  • Ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð.

  • Hver úthlutun aflaheimilda kostar 14.000 kr. samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu.

  • Vinsamlega kynnið ykkur reglugerð um skiptimarkað.