Fara beint í efnið

15. mars 2022

Skipti á aflamarki - tilboð óskast

Samkvæmt 4. gr. reglugerðar nr. 920/2021 , um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2021/2022, með síðari breytingum, auglýsir Fiskistofa eftir tilboðum í skipti á aflamarki.

Fiskistofa logo

Samkvæmt 4. gr. reglugerðar nr. 920/2021 , um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2021/2022, með síðari breytingum, auglýsir Fiskistofa eftir tilboðum í skipti á aflamarki.

Í boði er neðangreint aflamark, í tilgreindum tegundum, í skiptum fyrir aflamark í þorski. Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar. Viðmiðunarverð síðasta mánaðar: þorskur 373,63 kr/kg.

Tilboðsmarkaðurinn opnar klukkan 14:00 þriðjudaginn 15. mars 2022. Ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð.

Athugið að samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu (http://www.fiskistofa.is/umfiskistofu/gjaldskra/) ber að greiða 12.900 krónur fyrir hverja úthlutun aflaheimilda á tilboðsmarkaði. Þannig ber tilboðsgjafa að greiða þá upphæð fyrir hvert tilboð sem tekið er að fullu eða að hluta.

Fisktegund

Þorskígildisstuðlar

Aflamark

 Eining

Loðna

0,36

1.292

tonn

Kolmunni

0,08

8.418

tonn

Norsk-íslensk síld

0,16

5.736

tonn

Eingöngu er unnt að gera tilboð í gegnum UGGA, upplýsingagátt Fiskistofu. Tilboðsmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Vakin er athygli á að Ugginn sendir sjálfkrafa staðfestingu um móttöku tilboðs.

Afturköllun tilboða eftir að umsóknarfrestur er runninn út er óheimil. Að gefnu tilefni er rétt að benda bjóðendum á að skv. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar 920/2021 sem fjallar um þennan tilboðsmarkað, eru það eingöngu bjóðendur, ekki Fiskistofa, sem er heimilt að afturkalla tilboð svo lengi sem þeir gera það áður en tilboðsfrestur er liðinn. Því er mikilvægt að yfirfara tilboð vel áður en því er skilað og skoða tilboðið undir „Málin mín“ í UGGA eftir að tilboðinu hefur verið skilað til að tryggja að allt sé rétt. Ef mistök hafa átt sér stað við tilboðsgerð þá getur bjóðandi afturkallað tilboðið í UGGA allt þar til tilboðsfrestur rennur út.

Frestur til að skila tilboðum er til kl. 14:00 þriðjudaginn 22. mars 2022.