13. janúar 2014
13. janúar 2014
Þessi frétt er meira en árs gömul
Skipan starfshóps um leiðir til að samþætta kynja- og jafnréttissjónarmið innan lögreglunnar
Ríkislögreglustjóri hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að vinna tillögur til ríkislögreglustjóra að samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða í stefnumótun og ákvörðunum lögreglunnar. Í starfshópnum eiga sæti Finnborg Salome Steinþórsdóttir, fulltrúi ríkislögreglustjóra sem jafnframt er formaður hópsins, Hildur Þuríður Rúnarsdóttir lögreglumaður, fulltrúi Landssambands lögreglumanna, Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri, fulltrúi lögreglustjórafélagsins, Vignir Elísson rannsóknarlögreglumaður, fulltrúi lögreglustjórans á Suðurnesjum og Árni Sigmundsson yfirlögregluþjónn, fulltrúi Lögregluskóla ríkisins. Tillögum starfshópsins skal skilað til ríkislögreglustjóra í mars 2014.