29. maí 2024
29. maí 2024
Skilafundum aflýst í ljósi aðstæðna
Í ljósi aðstæðna hefur öllum skilum á eignum til fasteignafélagsins Þórkötlu í Grindavík sem fara áttu fram í þessari viku verið aflýst.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/596KqKlYlhNhySeAP9ObAm/49c502a8979b93c6d6361ec542c386f6/IMG_0505.jpeg?w=50&fm=webp&q=80)
![Grindavík 12 april](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/596KqKlYlhNhySeAP9ObAm/49c502a8979b93c6d6361ec542c386f6/IMG_0505.jpeg?w=774&fm=webp&q=80)
Í ljósi aðstæðna hefur öllum skilum á eignum til fasteignafélagsins Þórkötlu í Grindavík sem fara áttu fram í þessari viku verið aflýst. Allir sem boðaðir höfðu verið á fund félagsins hafa fengið skilaboð þessa efnis. Töluverður fjöldi sérfræðinga á vegum Þórkötlu var í Grindavík í dag þegar rýming hófst og fylgdu þeir leiðbeiningum almannavarna um að halda þegar í stað burt úr bænum. Þórkatla fylgist áfram náið með þróun mála og mun aðlaga verkferla sína að aðstæðum á meðan ekki er óhætt að vera í Grindavík.
Hugur starfsfólks Þórkötlu er hjá bæjarbúum, fólki sem starfar í nágrenninu og þeim öflugu viðbragðsaðilum sem stýra aðgerðum á vettvangi.