Fara beint í efnið

19. október 2023

Skert starfsemi vegna kvennaverkfalls 24. október nk.

Gera má ráð fyrir skertri starfsemi hjá HSN þann 24. október vegna boðaðs verkfalls kvenna og kvára.

HSN-idjuthjalfi

Fjölmörg samtök launafólks, kvenna og hinsegin fólks hafa boðað til kvennaverkfalls þriðjudaginn 24. október. Konur og kvár sem það geta eru hvött til að leggja niður launuð og ólaunuð störf. 

Konur eru mikill meirihluti af dýrmætum mannauði Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.

Gera má ráð fyrir skertri starfsemi þennan dag vegna boðaðs verkfalls kvenna og kvára. Nauðsynlegri grunnþjónustu verður sinnt og heilsu og öryggi skjólstæðinga verður ekki stefnt í hættu. Verkefnum sem ekki eru metin bráð verður ekki sinnt þennan dag.

Ekki verður dregið af launum starfsfólks sem taka þátt í kvennaverkfallinu.

Jafnrétti fyrir öll!

Hjukrunarfraedingar2023